Afhreistrun er mikilvæg fyrir meðhöndlun Psoriasis. Hún er líka mikilvæg fyrir meðferð hreistrandi húðsjúkdóma í hársverði svo sem flösuexems og psoriasis. Meðferð hefur að jafnaði ekki nægileg áhrif sé hreistur ekki fjarlægt. Þetta gildir fyrir ljósameðferð, D-vítamín afleiður eins og Daivonex, kortisónkrem, tjöru og Dithranol (Micanol).
Líkami:
- Farið í bað eða sturtu.
- Farið í gufubað sé möguleiki á því.
- Smyrjið útbrotin með Salicýlvaselíni 2%.
- Látið sitja á í 2-4 klst. eða yfir nótt.
- Þvoið líkamann með vatni og sápu.
- Endurtakið eftir þörfum
Hársvörður:
- Smyrjið í hársvörðinn ACP kremi eða mýkjandi kremi sem inniheldur annað hvort salicýlsýru eða carbamíd. Einnig má nota 2% salicýlsýru í spir. dil. eða þá salicýlolíu.
- Látið sitja í hársverði í 2-4 klst. eða yfir nótt.
- Sumum finnst gott að sofa með hettu á höfðinu eftir að kremið hefur verið borið í.
- Setjið svo sjampó í þurrt hárið og nuddið allan hársvörðinn létt með sjampóinu.
- Síðan er hárið þvegið með vatni.
- Endirtakið eftir þörfum
No comments:
Post a Comment